Lýsing
Wave Guesthouse býður upp á gistingu í 4 tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum. Allur almennur búnaður er til staðar. Sameiginlegar snyrtingar, setustofa og eldhús.
Húsið var áður prestssetur Hríseyinga og var byggt árið 1935 af Hreini Pálssyni. Nýlega var farið í breytingar og húsið fékk andlitslyfingu þegar ákveðið var að opna gistingu í húsinu. Hrísey er sjávarþorp og þar sem eigendurnir hafa tengingu við sjó og sjómennsku var ákveðið að hafa sjávar- og sjómannsþema í Wave Guesthouse.
Wave Guesthouse er staðsett í Hrísey, Perlu Eyjafjarðar sem er rómuð fyrir kyrrð og náttúrufegurð.
Í Hrísey er fjölbreytt þjónusta og afþreying í boði meðal annars sundlaug, veitingahús, kaffihús, verslun, gallerí, safn Hákarla Jörundar, Holt - Hús Öldu Halldórsdóttur, traktorsferðir, fuglaskoðun, fuglaskoðunarhús, merktar gönguleiðir, orkulind og frisbígolf.Wave Guesthouse býður upp á gistingu í 4 tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum. Allur almennur búnaður er til staðar. Sameiginleg snyrting, setustofa og eldhús.
Setja inn umsögn