Lýsing
Í Vaglaskógi eru fimm tjaldsvæði sem öll bjóða upp á aðgengi að salerni og flest að rafmagni. Einnig má finna sturtur á tveimur stöðum í skóginum. Það er á flestum stöðum gott aðgengi fyrir hjólastóla.
Hér má einnig finna flotta leikaðstöðu fyrir börnin, þar á meðal hoppudýnu, fótboltavöll og leikvöll.
Í Vaglaskógi er að finna fjöldann allan af skemmtilegum gönguleiðum sem liggja í gegnum fjölbreytta og fallega náttúru skógarins.
Stutt er í Akureyri (17km gegnum Vaðlaheiðargöng), golfvöll með veitingaskála (3km), húsdýragarð (6km), sundlaug með verslun og mini-golf (12km).
Verð á nótt:
1600 kr á mann
1100 kr fyrir eldri borgara og öryrkja
1000 kr fyrir rafmagn
Sturtugjald: 500 kr fyrir 5 mínútur af heitu vatni
FRÍTT er fyrir 14 ára og yngri í fylgd með forráðamanni. Án fylgdar forráðamanns er aldurstakmarkið á tjaldsvæðunum 18 ár.
Nokkrir punktar til að hafa í huga:
- Við flokkum rusl í Vaglaskógi og biðjum við tjaldsvæðagesti að gera slíkt hið sama á meðan dvölinni stendur
- Lausaganga hunda og katta er bönnuð, leyfilegt er að hafa dýrin í taumi
- Hægt er að leigja skott/millistykki fyrir rafmagnstengingu. Tryggingargjald er 3500 kr, 3000 kr verða endurgreiddar við skil.
- Dvalargjöld eru innheimt af tjaldvörðum
Setja inn umsögn