Lýsing
Um er að ræða skjólsælt og gott FJÖLSKYLDUTJALDSVÆÐI. Ró á að vera komin á svæðið um miðnætti. Tjaldsvæðinu er skipt upp í tvö megin svæði.
Á svæðinu er mjög góð aðstaða fyrir börn. Sparkvöllur/gervigrasvöllur og körfuboltavöllur. Þrír leikvellir fyrir börn, þar af einn með meðal annars aparólu og stórum hoppubelg.
Sundlaug er að Laugalandi.
Á tjaldsvæðinu er útigrill, útiborð, rotþró fyrir ferðaklósett, rafmagn, heitt vatn og fl..
Leyfilegt er að hafa hunda á tjaldsvæðinu ef þeir eru í bandi og þrifið er upp eftir þá.
Verð 2020:
1500 kr. fullorðnir
Frítt fyrir börn 17 ára og yngri í fylgd með foreldrum
Rafmagn 1000 kr.
Á Laugalandi eru þrjú lítil gistihús sem hægt er að leigja. Nánari upplýsingar um gistihúsin má finna með því að smella á linkinn hér að neðan:
https://www.airbnb.com/h/nefsholt OTRI
https://www.airbnb.com/h/nefsholt2 ÍSEY
https://www.airbnb.com/h/nefsholt3 ELDEY
Eða hafa samband í síma 899-6514
Velkomin ❤️
