Lýsing
Tjaldsvæðið er staðsett í ofanverðum jaðri bæjarins með einstakt útsýni hvort sem er til sjávar eða fjallgarðsins. Svæðinu er skipt upp í nokkur minni svæði þar sem hver og einn gestur getur fundið náttstað við sitt hæfi.
Á tveimur stærstu svæðunum eru WC með aðstöðu til að vaska upp leirtau ásamt aðgengi fyrir fatlaða. Hann er örstutt frá sundlauginni og þar við er ærslabelgur ásamt leiktækjum fyrir börn á skólalóðinni.
Grundarfjörður hentar einstaklega vel fyrir ferðalanga sem vilja tjalda á sama stað í nokkrar nætur þar sem staðsetningin er miðsvæðis á norðanverðu Snæfellsnesi í miðju sögusviði Eyrbyggjasögu. Héðan er stutt í allar áttir, hægt að fara í dagsferð í Flatey og næsta dag hring í Snæfellnesjökulsþjóðgarðinum. Stutt er í flesta þjónustu bæði verslun, kaffihús, veitingastaði og bensín. Svo er boðið upp á afþreyingu á svæðinu, s.s. hestaferðir, kajakferðir, bátsferðir, hvalasjóstöng og fuglaskoðun. Golfvöllur er í nágrenninu og gönguleiðir frá fyrri tíð liggja upp í fjallgarðinn og útsýni yfir Kirkjufellið er stórkostlegt.
Gjaldskrá tjaldsvæðis (gildir sumarið 2020):
Gjald á sólarhring:
Fullorðnir: 1.300 kr.
Börn yngri en 16 ára: Frítt
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 900 kr.
Rafmagn: 1.000 kr.
Afsláttarkjör:
Þriggja daga dvöl: -15%
Sex daga dvöl: -25%
Setja inn umsögn