Lýsing
Góð hreinlætisaðstaða með frítt í sturtu. Stutt er í verslun, sundlaug og veitingahús. Drangsnes er góður viðkomustaður á leið í Árneshrepp en þangað eruð um 90 km. Í boði eru siglingar út í Grímsey sem er náttúruparadís. Á svæðinu er íþróttavöllur, heitir pottar í fjörunni og margt fleira.
Á tjaldsvæðinu er kolagrill. Hægt að fá samkomuhúsið leigt en þar er góður salur fyrir 120 manns í sæti. Kjörið fyrir ættarmót..
Góð veitinga og gistiaðstaða ásamt afþreyingu á Drangsnesi
Verð 2020:
Verð fyrir fullorðna: 1.100 kr
Verð fyrir börn: Frítt fyrir yngri en 13 ára
Verð fyrir sturtu: 400 kr
Rafmagn: 1.000 kr
Setja inn umsögn