Lýsing
Gistiheimilið Svítan er aðeins í 5 mínútna keyrslu frá Keflavíkurflugvelli.
Lítið 4 herbergja kósý hús í miðbæ Keflavíkur.
Svítan var einu sinni skiltagerð en nú höfum við verið að gera húsið upp. Það er nýtt gólfefni á öllum gólfum, allt nýmálað og allt nýtt á baðherbergi. Eldhús er fínt með borði og stólum, eldavél og ískápur ásamt fleiri tækjum og eldhúsáhöldum. Morgunmatur er innifalin en fólk sér um að útbúa hann sjálft. Í stofu eru sófar, sjónvarp, þráðlaust internet og fjölvarp á staðnum.
Svítan er staðsett í göngufæri frá búðum, bíó, veitingahúsum, söfnum, vatnaveröld (sem er: sundlaug með líkamsræktarstöð, inni og útistundlaug, gufubaði og heitum pottum).
Hafa samband
Senda skilaboð
[contact-form-7 id="198"]
