Lýsing
Sel-Hótel Mývatn hefur 58 herbergi og eru þau öll með sér baðherbergi.
Öll herbergi hótelsins hafa sjónvarp og te/kaffiaðbúnað.
Einnig er möguleiki á háhraða tölvutengingu á öllu hótelinu sem og ókeypis aðgang að gufubaði og heitum potti. Boðið er upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni.
Á veitingastað hótelsins er boðið upp á a la cart matseðil allt árið um kring og á sumrin eru einnig hádegisverðar- og kvöldverðarhlaðborð.
Á Sel-Hótel Mývatni er leitast við að skapa notalegt viðmót gagnvart gestum hótelsins og er mikilfenglegt útsýni frá herbergjunum, yfir Skútustaðagíga og út á Mývatn. Hótelið er vel búið til að allskonar fyrirtækja- og skemmtiferðum, bæði varðandi aðbúnað á hótelinu og einnig aðra afþreyingu á Mývatnssvæðinu.
Ennfremur er hótelið einstaklega vel staðsett til að sinna ráðstefnum og fundum fyrir stærri sem smærri hópa og er fundarsalur fyrir 80 manns á hótelinu.
Tilboð sumarið 2020, tvær nætur á verði einnar ! sjá www.myvatn.is/is/hotelid/verd-a-gistingu
Setja inn umsögn