Site logo
    • HEIM
    • TEGUND GISTINGAR
      • Hótel
      • Gistiheimili
      • Heimagisting
      • Bændagisting
      • Sumarhús
      • Íbúðir
      • Fjallaskálar
      • Tjaldsvæði
      • Farfuglaheimili og hostel
      • Svefnpokagisting
      • Myndir og kort
    • SVÆÐI
      • Höfuðborgarsvæðið
      • Reykjanes
      • Suðurland
      • Norðurland
      • Vesturland
      • Vestfirðir
      • Austurland
    • FRÉTTIR
    Skrá gistingu
    Innskrá
    Skrá gistingu

    Vorsabær 2

    • Hringja núna
    • Gististaður
    • Umsagnir 0
    • Hafa samband
    • prev
    • next
    • Akstursleið
    • Geyma
    • Deila
    • Senda athugasemd
    • Gefa umsögn
    • prev
    • next
    Lýsing

    Hestaferðir
    Í Vorsabæ 2 er boðið er upp á hestaferðir þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og leiðsögn. Eingöngu er tekið á móti litlum hópum og það er tilvalið fyrir fjölskyldur eða litla vinahópa þar sem allir geta tekið þátt. Við tökum að okkur að teyma hesta undir minna vönum börnum í ferðum.
    Allar ferðir hefjast inni í reiðhöll þar sem hver og einn getur kynnst hestinum sínum. Svo er farið og riðið út um næsta nágrenni á þeim hraða sem hentar hverju sinni.
    Við erum með trausta og skemmtilega hesta við allra hæfi, bæði fyrir alveg óvana og vana knapa. Í boði eru 1, 2 og 3 tíma hestaferðir, en einnig eru í boði dagsferðir fyrir vana knapa sem taka 5 tíma.
    Einnig bjóðum við upp á það að teyma hesta undir börnum inni í reiðhöll í um 10 mínútur fyrir hvert barn.
    Sveitalíf / Heimsókn á bæinn
    Hægt er að koma í heimsókn til að skoða dýrin og búskapinn á bænum. Tekið er á móti litlum og stórum hópum og gefst gestum kostur á að fræðast um dýrin og klappa þeim. Starfsemin getur verið nokkuð mismunandi eftir árstíma og t.d. á vorin geta allir séð nýfædda kiðlinga, lömb og folöld.
    Orlofshús til útleigu á bænum
    Húsið rúmar allt að 8 manns í gistingu. Þar eru 2 svefnherbergi, í öðru er tvíbreitt rúm en í hinu eru kojur þar sem sú neðri er tvíbreið. Auk þess er rúmgott 18 fermetra svefnloft, en þar eru 3 rúm og auk þess er hægt að bæta við dýnum eða fá lánað ungbarnarúm. Eldhúsið er búið öllum nútíma tækjum og áhöldum og í setustofu er sjónvarp. Við húsið er skjólgóð verönd með garðhúsgögnum og gasgrilli. Ekki er aðgangur að heitum potti en hægt er að komast í sundlaug sem staðsett er í 2 km. fjarlægð. Upplögð staðsetning fyrir þá sem ferðast um Suðurland, þar sem stutt er til margra vinsælla ferðamannastaða og stutt í margskonar þjónustu.

    Hafa samband
    • http://www.vorsabae2.is/
    • 4865522
    • bjornjo@vorsabae2.is
    Samfélagsmiðlar
    • Facebook
    Senda skilaboð
    [contact-form-7 id="198"]
    Myndir
    Staðsetning
    • Vorsabær 2 Skeiðum, 804 Selfoss

      Sýna ökuleið
    Tegund
    • Bændagisting
    • Sumarhús
    Svæði
    • Suðurland
    [contact-form-7 id="198"]

    Aðrir áhugaverðir gististaðir

    Bjarg Apartments / Íbúðargisting í Grundarfirði

    • Grundargata 8
    • Spjald
    • Merkja

    Ferðaþjónustan Dalbæ

    • Snæfjallaströnd
    • Spjald
    • Merkja

    Auðnir gistiheimili

    • Auðnir
    • Spjald
    • Merkja
    Hafa samband

    GISTA | Egilsmói 4 | 270 Mosfellsbær | S: 691-2225 | gista@gista.is

    Um okkur | Skilmálar

    © Hannað með af Veftorg

    Cart

      • Facebook
      • X
      • WhatsApp
      • Telegram
      • LinkedIn
      • Tumblr
      • Reddit
      • VKontakte
      • Mail
      • Copy link
      • Share via...
      • Threads
      • Bluesky