Lýsing
Lítið en fjölsótt tjaldsvæði. Staðsett rétt við miðbæ Akureyrar. Stutt í alla þjónustu. Verslun við tjaldsvæðið og 100 m í sundlaug Akureyrar.
Sú staðreynd að tjaldsvæðið er í miðjum bænum, í göngufæri frá nánast allri þjónustu, með sundlaugina á aðra höndina og kjörbúð nánast inn á svæðinu, gerir staðinn mjög eftirsóknarverðan. Á svæðinu eru 12 salerni, sturtur, heitt og kalt vatn, þvottavél og þurrkari. Aðgengi að rafmagni er víða á svæðinu.
Rétt er að benda á að á tjaldsvæðum okkar gilda almennar tjaldsvæðareglur sem eru eftirfarandi:
Tjaldsvæðið er fjölskyldutjaldsvæði og yngri en 18 ára skulu vera í fylgd með forráðamanni. Við sérstakar aðstæður geta aldurstakmörk verði hærri.
Gestum ber að hafa samband við tjaldvörð og greiða dvalargjöld.
Umferð ökutækja á tjaldsvæðinu á að vera lágmarki og er takmarkuð við akstur inn og útaf svæðinu. Hámarkshraði er 15. km/klst.
Ekki má rjúfa næturkyrrð, vera með háreysti eða valda óþarfa hávaða með umferð eða öðru.
Virða ber næturkyrrð á milli kl 24 og 08.
Ölvun er bönnuð á tjaldsvæðinu.
Sorp skal sett í þar til gerð ílát, flokkað eftir þeim reglum sem gilda á tjaldsvæðinu.
Hundar mega aldrei vera lausir á tjaldsvæðinu eða valda öðrum gestum ónæði eða ótta..
Vinnið ekki spjöll á náttúrunni, húsnæði eða búnaði tjaldsvæðisins.
Brot á umgengnisreglum getur varðað brottreksti af tjaldsvæðinu
Bílar eru ekki leyfðir inn á svæðinu nema til losunar og lestunar. Þegar gestir hafa komið sér fyrir eru þeir beðnir um að leggja bílnum á bílastæði við tjaldsvæðið.
Bannað er að kveikja opinn eld á svæðinu. Farið varlega með grill og gastæki. Vinsamlega leggið ekki einnota grill beint á jörðina.
Tjaldvörður frá 1/6-15/9: 863-0726
Verð 2020
Gistin 1 nótt per mann: 1.700 kr.
18 ára og yngri: 0 kr.
Eldri borgarar og öryrkjar 1.300 kr.
Rafmagn 1 nótt: 1.050 kr.
Þvottavél: 500 kr.
Þurrkari 500 kr.
Ekki er veittur afsláttur af gistingu á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti og þar þarf að greiða fyrir aðgang að sturtum.
