Lýsing
Velkomin á heimili okkar á Selfossi. Við erum tvö í heimili og við erum með einn hund, Lukku sem er 13 ára gömul tík.
Við erum með eitt double hjónaherbergi og tvö minni herbergi með kojum. Við erum með bjarta stofu og borðstofu þar sem að gestir geta slakað á. Fengið sér kaffi og te og borðað morgunmatinn. Við erum með ágætan garð og garðhúsgögn á pallinum fyrir gesti.
Við bjóðum upp á frítt wifi og fallegt morgunverðarhlaðborð.
Húsið er bjart og opið.
Gestir hafa aðgang að almannarými nema eldhúsi en hafa aðstöðu til að sjóða vatn og laga kaffi
Ég get hjálpað gestum með upplýsingum um ferðalög um Ísland
Hverfið er rólegt og stutt í hesthúsahverfið og náttúruna
Það eru um það bil 600 metrar í næstu strætóstoppistöð
